Upplýst samþykki

Útgáfa 15. ágúst 2026. Þetta er sá texti sem birtist í rannsókninni sjálfri. Ef textanum er breytt gildir sú útgáfa sem birtist í rannsóknarviðmótinu.

Markmið rannsóknarinnar VAL er að auka þekkingu á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku. Þátttaka þín er valfrjáls. Rannsóknin er leidd af vísindafólki við Háskóla Íslands í samstarfi við alþjóðlegan hóp rannsakenda frá Háskólanum í Maastricht í Hollandi, Max Planck Institute for Behavioral Economics í Þýskalandi, Háskólanum í Varsjá í Póllandi og Harvard í Bandaríkjunum. Ábyrgðarmaður og aðalrannsakandi er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Háskóli Íslands. Spurningum um persónuvernd má beina til persónuverndarfulltrúa Háskóla Íslands, Magnúsar Jökuls Sigurjónssonar, mjs@hi.is, sími 525 4052. Spurningum um rannsóknina og þátttöku í henni má beina til rannsóknarteymisins, rannsoknin.val@hi.is, sími 525 4545 (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands). Rannsóknin er fjármögnuð af Rannsóknasjóði Íslands og framkvæmd með stuðningi eftirfarandi samstarfsaðila okkar: Kötlu Fitness, Reykjavíkurborg og Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins (Strætó).

Rannsóknaráætlunin var lögð fyrir siðanefnd Háskólans í Maastricht (Ethical Review Committee Inner City Faculties), sem komst að þeirri niðurstöðu 25. maí 2026 að engar siðferðilegar athugasemdir væru gerðar við framkvæmd rannsóknarinnar.

Ef þú velur að taka þátt biðjum við þig um að ljúka þátttöku á netinu sem gera má ráð fyrir að taki 15 til 45 mínútur. Hversu langan tíma hún tekur í raun fer að hluta til eftir svörum þínum. Sumir þátttakendur svara öllum þáttunum, aðrir aðeins hluta. Þátttakan getur falið í sér eftirfarandi þætti:

  • Spurningar um bakgrunn þinn, viðhorf og venjur.
  • Lukkuhjól þar sem þú gætir átt kost á að kaupa tímabilskort hjá samstarfsaðilum okkar (í Sundlaugar Reykjavíkur, Almenningssamgöngur Strætó, líkamsræktarstöðvar Kötlu Fitness eða Menningarkort Reykjavíkur) á afsláttarverði. Ef af kaupum verður fara þau fram í rannsóknarviðmótinu á meðan þátttaka þín stendur yfir. Verð tímabilskortsins og hvort af kaupum verður ræðst af snúningi lukkuhjólsins en er aldrei hærra en sú hámarksupphæð sem þú samþykkir að greiða fyrir kortið.
  • Spurningar þar sem þú velur á milli mismunandi peningagreiðslna. Þú getur fengið greidda upphæð allt að 15.000 kr. Hvort af greiðslu verður og upphæð greiðslunnar ræðst af handahófsvali og þeim ákvörðunum sem þú tekur.

Athugaðu að eftirfarandi á við:

  • Þú hefur 24 klukkustundir til að ljúka þátttöku þinni í rannsókninni. Niðurtalning hófst þegar þú skráðir þig inn með rafrænum skilríkjum. Innan þessara 24 klukkustunda getur þú lokað rannsóknarviðmótinu hvenær sem er og skráð þig aftur inn með rafrænum skilríkjum til að halda áfram. Að þeim tíma liðnum lokast aðgangur og frekari þátttaka er ekki möguleg.
  • Mikilvægt: Mögulegar peningagreiðslur til þín eru aðeins greiddar út ef þú lýkur ferlinu til enda innan þessara 24 klukkustunda.
  • Tímabilskort sem þú hefur keypt í rannsókninni mun þó gilda óháð því hvort þú klárir þátttökuna innan 24 klukkustunda eða ekki – kortið er þitt.
  • Almennt er ekki hægt að fara til baka í viðmóti rannsóknarinnar. Það er því mikilvægt að íhuga svörin vandlega áður en haldið er áfram. Þetta á sérstaklega við þar sem raunverulegir afslættir og greiðslur kunna að ráðast af vali þínu milli ólíkra valkosta sem þér eru kynntir í rannsókninni.

Þetta er forprófun rannsóknarinnar VAL. Fyrirhugað er að aðalrannsóknin fari fram haustið 2026. Ef þú tekur þátt í forprófuninni munt þú ekki geta tekið þátt í aðalrannsókninni seinna í haust. 

Ef þú hefur spurningar um réttindi þín sem þátttakandi í rannsókninni eða vilt draga þátttöku þína til baka, getur þú sent okkur tölvupóst á rannsoknin.val@hi.is eða hringt í +354 525 4545 (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands).

Viðvörun: Þátttaka í rannsókninni felur í sér lukkuhjól og handahófsval. Fyrir einstaklinga með spilafíkn getur þetta líkst fjárhættuspili. Ef þú hefur glímt við eða glímir við spilafíkn ættir þú að íhuga þetta áður en þú ákveður hvort þú takir þátt. Spilavandateymi SÁÁ veitir aðstoð við spilafíkn (spilavandi@saa.is eða +354 530 7600).

Vinsamlegast lestu skilmála rannsóknarinnar vandlega áður en þú samþykkir.

Gagnaöryggi

Rannsóknin er framkvæmd í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Meðferð persónuupplýsinga

Allar upplýsingar um þátttakendur og gögn úr rannsókninni eru geymd undir dulkóðuðum persónuauðkennum í rannsóknargagnagrunni. Greining fer ávallt fram á þeim gagnagrunni, sem inniheldur engar beint persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nöfn eða kennitölur. Dulkóðunarlykillinn er geymdur aðskilinn frá gögnunum og með öruggum hætti hjá Upplýsingatæknisviði Háskóla Íslands, og hann er aðeins notaður í þeim tilgangi sem lýst er hér að neðan. Rannsakendur hafa ekki aðgang að lyklinum. Engar persónugreinanlegar upplýsingar koma fram í þeim niðurstöðum sem birtar eru. Öll gögn eru meðhöndluð sem trúnaðarmál. Þátttaka þín í rannsókninni og almenn vinnsla rannsóknargagna byggist á upplýstu samþykki þínu. Þú getur dregið samþykki þitt til baka hvenær sem er. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem þegar hefur farið fram á grundvelli samþykkisins. Ef þú dregur samþykki þitt til baka verður frekari vinnsla persónuupplýsinga þinna, sem byggist á samþykkinu, stöðvuð. Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga þinna brjóti í bága við lög átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.

Tenging við notkunargögn

Upplýsingar úr rannsókninni verða tengdar við gagnagrunna um notkun þeirrar þjónustu sem þátttakendur kaupa. Þar sem notkunargögn eru vistuð á kennitölum krefst tengingin þess að auðkenni rannsóknargagnanna séu tímabundið afkóðuð á meðan á tengingu stendur. Fyllsta öryggis er gætt í því ferli.

Aðrar mögulegar gagnatengingar

Í framtíðinni gætum við leitast við að tengja svör þín við aðrar skrár í rannsóknarskyni, til dæmis mennta-, skatta- eða heilbrigðisskrár, íslensk erfða- eða ættfræðigögn, eða kannanir. Slík tenging verður aðeins framkvæmd ef fyrir henni er lagalegur grundvöllur og eftir að aflað hefur verið þeirra samþykkja, leyfa eða umsagna frá viðeigandi siðanefnd(um), gagnavörsluaðila(um) og/eða Persónuvernd sem krafist er samkvæmt gildandi lögum. Ef rannsóknin sem um ræðir fellur undir lög um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði nr. 44/2014 verður samþykki Vísindasiðanefndar eða annarrar þar til bærrar siðanefndar heilbrigðisrannsókna aflað áður en tengingin fer fram. Til að framkvæma slíka tengingu þarf að afkóða auðkennin tímabundið á meðan á tengingu stendur. Almennt verður ekki haft samband við þig aftur til að afla samþykkis fyrir slíkum tengingum, en þú getur hvenær sem er afturkallað heimild þína fyrir framtíðartengingu með því að hafa samband við rannsóknarteymið.

Aðgangur og alþjóðleg gagnamiðlun

Til að efla vísindalegt gagnsæi og endurtekningarhæfni verða gögn úr rannsókninni, undir dulkóðuðum auðkennum, gerð aðgengileg hæfum rannsakendum um allan heim í gegnum gagnageymslu með stýrðum aðgangi. Rannsakendur sem tengjast viðurkenndum rannsóknastofnunum geta sótt um aðgang. Þetta þýðir að gögn þín kunna að verða flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES), þar á meðal til landa sem veita hugsanlega ekki sömu vernd persónuupplýsinga og Ísland eða Evrópusambandið. Slíkur flutningur verður framkvæmdur í samræmi við V. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679 (GDPR), með viðeigandi verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsákvæðum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt, eða á grundvelli ákvörðunar um fullnægjandi vernd þar sem það á við, til dæmis Data Privacy Framework milli ESB og Bandaríkjanna. Engum beint persónugreinanlegum upplýsingum verður miðlað.

Takmörkuð notkun persónugreinanlegra upplýsinga

Þótt gögn sem safnað er í þessari rannsókn verði geymd og greind undir dulkóðuðum auðkennum kalla nokkrar afmarkaðar aðstæður á að tilteknar persónuupplýsingar séu notaðar eða þeim miðlað á persónugreinanlegu formi við framkvæmd rannsóknarinnar, stofnun tímabilskorta, framkvæmd greiðslna, til að uppfylla lagaskyldu gagnvart skattayfirvöldum og við miðlun upplýsinga úr rannsókninni sem þú hefur óskað eftir að fá. Í þessum tilvikum verða aðeins þær upplýsingar notaðar sem nauðsynlegar eru í hvert skipti.

Stofnun tímabilskorts

Ef kaup fara fram verða þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að stofna kortið (svo sem kennitala, nafn, netfang, heimilisfang, símanúmer og kyn) afhentar viðeigandi samstarfsaðila.

Upplýsingar veittar þátttakendum

Í lok þátttöku þinnar getur þú valið að fá upplýsingar um niðurstöður þínar varðandi hegðun afhentar síðar, þ.e. eftir að rannsókninni lýkur. Ef þú velur að fá slíkar upplýsingar þarf tímabundið að afkóða auðkenni þitt til að hægt sé að senda niðurstöðurnar.

Greiðslukortaupplýsingar

Við þátttöku í rannsókninni munt þú þurfa að gefa upp greiðslukortaupplýsingar þínar í öruggu viðmóti vegna mögulegra kaupa á tímabilskorti á afsláttarverði. Greiðslukortaupplýsingar verða ekki varðveittar af rannsóknarteyminu, heldur er þeim eytt strax og greiðslu lýkur (ef kaup eiga sér stað) eða heimild hefur verið felld niður (ef ekki verður af kaupum) í gegnum örugga gátt greiðslumiðlara.

Greiðsluheimild

Áður en kaup fara fram munt þú tilgreina það hámarksverð sem þú ert reiðubúin(n)/reiðubúið að greiða. Kerfið sækir heimild fyrir þeirri upphæð á greiðslukortinu þínu. Þú getur aðeins haldið áfram ef heimild liggur fyrir, þar sem þú skuldbindur þig til að greiða allt að þeirri upphæð. Ef kaup fara fram verður upphæðin sem skuldfærð er ávallt jöfn eða lægri en uppgefið hámarksverð.

Kennitala og bankareikningsnúmer

Ef þú færð greiðslu í rannsókninni munt þú þurfa að gefa upp bankareikningsnúmer. Ódulkóðuð kennitala og bankareikningsnúmer verða geymd á öruggan hátt þar til allar millifærslur til þín hafa verið framkvæmdar sem getur verið allt að fjórum mánuðum eftir þátttöku í rannsókninni. Um leið og allar greiðslur hafa verið framkvæmdar er bankareikningsnúmeri þínu eytt.

Öryggi og trúnaður

Við leggjum mikla áherslu á öryggi og trúnað við meðferð allra upplýsinga. Upplýsingar um greiðslukort verða meðhöndlaðar með öruggum hætti af greiðslumiðlara okkar, Verifone (starfar fyrir hönd Landsbankans sem færsluhirðir). Landsbankinn uppfyllir alþjóðlega PCI-DSS öryggisstaðla til að tryggja persónuvernd og gagnaöryggi.

Forskráning til skattyfirvalda

Ef þú færð greiðslu í tengslum við þátttöku þína í rannsókninni verður fjárhæðin tilkynnt til skattyfirvalda og mun birtast í skattframtali næsta árs. Af þessum sökum verða upplýsingar um fjárhæðina og kennitölu þína geymdar þar til skattskilum hefur verið lokið.

Þátttaka í öðrum rannsóknum

Við kunnum að hafa samband við þig í framtíðinni til að bjóða þér þátttöku í eftirfylgnirannsóknum eða öðrum rannsóknarverkefnum sem tengjast rannsókninni VAL. Samband verður þá haft á það tölvupóstfang og/eða símanúmer sem þú gefur upp í þessari rannsókn. Öll þátttaka í seinni tíma rannsóknum er valfrjáls og það að fá boð skuldbindur þig ekki til þátttöku. Þú getur hvenær sem er beðið okkur um að hafa ekki aftur samband við þig í þessum tilgangi með því að senda tölvupóst á rannsoknin.val@hi.is.