Spurt og svarað

Rannsóknin VAL er vísindarannsókn undir stjórn fræðimanna við Háskóla Íslands. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu vísindaverkefni sem miðar að því að bæta skilning á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku. Slík þekking getur hjálpað til við að bæta stefnumótun, þjónustu og samfélagslausnir á mörgum sviðum.

Þú getur tekið þátt ef þú ert 18–66 ára, ert með rafræn skilríki og býrð eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Það skiptir ekki máli hvar lögheimili þitt er skráð.

Rannsóknin er ætluð fólki sem býr á höfuðborgarsvæðinu. Hún er þó ekki bundin við lögheimili. Þú getur tekið þátt ef þú býrð á svæðinu eða dvelur þar að jafnaði, í lengri eða skemmri tíma, jafnvel þótt lögheimili þitt sé skráð annars staðar. 

Rannsóknin er unnin í samstarfi við aðila sem selja tímabilskort sem veita aðgang að þjónustu og slíkt samstarf er nauðsynlegt til að svara tilteknum rannsóknarspurningum. Sú þjónusta sem nýtt er í þessum tilgangi er öll á höfuðborgarsvæðinu. Hér er um að ræða Sundlaugar Reykjavíkur, Strætó, Menningarkort Reykjavíkur og líkamsræktarstöðvar Kötlu Fitness. Þátttaka miðast því við höfuðborgarsvæðið, svo þátttakendur geti raunverulega nýtt sér þau tímabilskort sem kunna að standa til boða.

Í rannsókninni geta sumir þátttakendur keypt tiltekna þjónustu á niðursettu verði. Þetta felur meðal annars í sér þjónustu sem er einstaklingum 67 ára og eldri að kostnaðarlausu, eða aðgengileg á mjög niðursettu verði. Afsláttarfyrirkomulagið sem rannsóknin byggir á á því ekki við um þann aldurshóp. 

Nei. Hver einstaklingur getur aðeins tekið þátt í þessari útgáfu rannsóknarinnar einu sinni. Hugsanlega verða þó tækifæri til þátttöku í framhaldsrannsóknum síðar. 

Sumir þátttakendur fá beinar peningagreiðslur að upphæð allt að 15.000 krónur. Slíkar greiðslur leggjast þá inn á bankareikning viðkomandi. Þátttakendum kann jafnframt að standa til boða tímabilskort á afslætti: strætókort hjá Strætó, líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness, Menningarkort eða sundkort hjá Reykjavíkurborg. Þátttakendur geta einnig fengið persónulega endurgjöf sem felst í upplýsingum um eigin hegðun í samanburði við aðra. Slík endurgjöf berst þó síðar og aðeins ef þátttakandi hefur gefið til kynna að hann vilji slíka endurgjöf.

Nei. Þátttakendur svara ekki allir sömu spurningum, ekki stendur öllum sama þjónustan til boða, og verð ráðast af tilviljun. Þetta eru ekki mistök heldur hluti af hönnun rannsóknarinnar. Í vísindarannsóknum er oft nauðsynlegt að tilviljun ráði ýmsum þáttum fremur en val þátttakenda eða rannsakenda.

Í reynd þýðir þetta að þú getur ekki gengið að tiltekinni þjónustu vísri, og að tvær manneskjur sem taka þátt á sama tíma geta fengið ólíkt ferli.

Ef þú færð greiðslu sem hluta af þátttöku þinni í rannsókninni verður hún lögð inn á bankareikninginn sem þú gefur upp í rannsóknarviðmótinu. Upphæð greiðslunnar fer eftir vali þínu í rannsókninni og handahófsvali.

Þú tilgreinir fyrst hæsta verð sem þú ert reiðubúin(n)/reiðubúið að greiða fyrir kortið. Því næst dregur lukkuhjólið verð af handahófi, á bilinu frá núlli upp að markaðsverði kortsins. Öll verð á því bili eru jafnlíkleg, óháð því hvaða hámarksverð þú valdir.

Sé dregna verðið jafnt eða lægra en hámarksverðið sem þú gafst upp verða kaupin að veruleika og þú greiðir dregna verðið, ekki hámarkið sem þú gafst upp. Sé dregna verðið hærra fara engin kaup fram.

Þess vegna borgar sig alltaf að gefa upp þá upphæð sem þú ert í raun tilbúin(n)/tilbúið að greiða.

Gefir þú upp hærra hámarksverð en þú ert í raun tilbúin(n)/tilbúið að borga eru líkur á því að þú endir á því að kaupa kortið á verði sem þér þykir í raun of hátt.

Gefir þú upp hámarksverð sem er lægra en það verð sem þú værir í raun tilbúin(n)/tilbúið að borga getur farið svo að þú missir af því að kaupa kortið á verði sem þú hefðir vel viljað greiða.

Greiðsla fyrir tímabilskort fer fram með greiðslukorti í rannsóknarviðmótinu. Ef kaup fara fram verður kortið stofnað hjá viðkomandi samstarfsaðila. Nauðsynlegar upplýsingar til að stofna kortið verða þá sendar þeim samstarfsaðila sem ber ábyrgð á að afhenda eða virkja kortið. Þú færð allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig kortið er virkjað þegar kaup hafa gengið í gegn.

Já. Til að ljúka þátttöku þarf að skrá greiðslukortanúmer í öruggu viðmóti því þátttakan felur í sér möguleg kaup á tímabilskorti á afsláttarverði. Þetta er forsenda þátttöku en ekki afleiðing þess að þú kaupir kort.

Þú getur alltaf valið að gefa ekki upp greiðslukort og hætta þátttöku í staðinn. Greiðslukortaupplýsingar eru meðhöndlaðar af greiðslumiðlaranum Verifone fyrir hönd Landsbankans, sem uppfyllir alþjóðlega PCI DSS öryggisstaðla, og þeim er eytt þegar greiðslum er lokið.

Já, ef þú kýst svo. Þegar þú ert að ljúka þátttöku getur þú tilgreint hvort þú viljir fá persónulega endurgjöf sem sýnir einkenni þinnar ákvarðanatöku í samanburði við aðra þátttakendur. Þetta er valfrjálst. Þú getur þegið endurgjöfina eða hafnað henni, valið hefur engin áhrif á annað í rannsókninni.

Endurgjöfin berst ekki um leið og þú lýkur þátttöku, heldur eftir að rannsókninni sjálfri er lokið. Hún verður send á það tölvupóstfang sem þú gefur upp. Þú þarft að hafa lokið þátttöku til að eiga kost á endurgjöf.

Áhætta tengd þátttöku er talin hverfandi. Rannsóknin felur þó í sér lukkuhjól og handahófsval sem kunna að líkjast fjárhættuspili. Einstaklingar með spilafíkn ættu að hafa þetta í huga áður en þeir ákveða að taka þátt.

Spilavandateymi SÁÁ veitir aðstoð við spilavanda: spilavandi@saa.is eða sími 530 7600.

Áður en þátttaka hefst færð þú upplýsingar um rannsóknina og hvernig gögn þín verða geymd og notuð. Við biðjum þig um að samþykkja að þú hafir lesið þessar upplýsingar (upplýst samþykki). Þátttaka í rannsókninni er með þeim skilyrðum sem koma fram í upplýsta samþykkinu.

Þú getur lesið samþykkið í heild sinni hér.

Þú hefur 24 klukkustundir til að ljúka þátttöku. Tíminn byrjar að telja þegar þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.

Innan þessara 24 klukkustunda getur þú lokað viðmótinu hvenær sem er og skráð þig aftur inn með rafrænum skilríkjum til að halda áfram þar sem frá var horfið. Að þeim tíma liðnum lokast aðgangur og frekari þátttaka er ekki möguleg.

Möguleiki á peningagreiðslu er bundinn því að þú ljúkir allri rannsókninni innan þessara 24 klukkustunda. Ef þú kaupir tímabilskort í rannsókninni þá er það þitt um leið og kaup hafa farið í gegn, óháð því hvort þú klárir rannsóknina.

Upplýsta samþykkið birtist þér eftir innskráningu, þegar klukkan er þegar byrjuð að telja. Þú getur hins vegar lesið upplýsta samþykkið hér áður en þú byrjar, án þess að klukkan fari af stað.

Það er föst venja í rannsóknum á hegðun og ákvarðanatöku að greina ekki frá nákvæmum rannsóknarspurningum fyrir fram. Ástæðan er sú að þátttakandi sem veit hvað verið er að mæla breytir hegðun sinni, oftast óviljandi. Þá mælir rannsóknin viðbrögð við spurningunni sjálfri frekar en þá hegðun sem henni var ætlað að skoða, og niðurstöðurnar verða ónothæfar.

Þetta er ekki blekking. Ekkert sem þér er sagt í rannsókninni er ósatt. Þú færð fullar upplýsingar um hvað felst í þátttöku, hvernig gögnin eru geymd og notuð, hvað þú getur fengið og hvaða réttindi þú hefur, áður en þú samþykkir þátttöku. Það eina sem er ekki sagt fyrir fram er hvaða tilteknu spurningum niðurstöðurnar eiga að svara.

Niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar opinberlega þegar þær liggja fyrir.

Nei. Svör þín eru geymd undir dulkóðuðu auðkenni og greining fer fram á rannsóknargagnagrunni sem inniheldur engar beint persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nöfn eða kennitölur. Dulkóðunarlykillinn er varðveittur aðskilinn frá gögnunum hjá Upplýsingatæknisviði Háskóla Íslands. Rannsakendur hafa ekki aðgang að lyklinum, og engar persónugreinanlegar upplýsingar koma fram í niðurstöðum sem birtar eru.

Dulkóðunarlykillinn er þó notaður í afmörkuðum tilvikum sem nauðsynleg eru til að framkvæma rannsóknina: til að tengja svör við notkunargögn samstarfsaðila og aðrar gagnalindir, til að virkja tímabilskort, til að greiða þátttakendum og tilkynna greiðslur til skattyfirvalda, og til að senda þér þína eigin endurgjöf ef þú óskar eftir henni. Í hverju tilfelli eru aðeins þær upplýsingar notaðar sem þarf í það tiltekna verk.

Til að stuðla að gagnsæi og endurprófanleika verða gögn rannsóknarinnar, undir dulkóðuðum auðkennum, gerð aðgengileg með stýrðum aðgangi. Rannsakendur við viðurkenndar rannsóknarstofnanir, hvar sem er í heiminum, geta sótt um aðgang að þeim.

Þetta þýðir að gögnin kunna að verða flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið. Slíkir flutningar fara fram samkvæmt V. kafla persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins (GDPR) með viðeigandi verndarráðstöfunum. Engum persónugreinanlegum upplýsingum er miðlað.

Þátttaka er alltaf frjáls og þú þarft aldrei að gefa skýringu. Tvennt getur átt við.

Að hætta meðan á rannsókninni stendur. Þú getur lokað viðmótinu hvenær sem er og einfaldlega ekki haldið áfram. Möguleiki á peningagreiðslu er þó bundinn því að þú ljúkir þátttöku þinni í rannsókninni innan 24 klukkustunda frá því að þú skráðir þig fyrst inn með rafrænum skilríkjum. Tímabilskort sem þú hefur þegar keypt er þitt óháð því hvort þú klárar.

Að draga samþykki til baka síðar. Þú getur einnig haft samband og óskað eftir því að gögn þín verði ekki notuð frekar, að svör þín verði ekki tengd við aðrar gagnalindir í framtíðinni, eða að þér verði ekki boðin þátttaka í öðrum rannsóknum. Sendu tölvupóst á rannsoknin.val@hi.is eða hringdu í síma 525 4545 (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands).

Sumt verður þó ekki afturkallað. Kaup sem hafa farið fram ganga ekki til baka og greiðslur sem þegar hafa verið inntar af hendi verða ekki afturkallaðar. Sama gildir um þá vinnslu gagna sem þegar hefur farið fram, til dæmis greiningar sem búið er að gera og niðurstöður sem búið er að birta. Afturköllun stöðvar frekari notkun gagna þinna í rannsókninni en breytir ekki því sem þegar hefur verið gert.

Að hætta þátttöku eftir að kaup á tímabilskorti hafa gengið í gegn hefur ekki áhrif á kaupin, kortið er þitt. Hins vegar hefur þú ekki möguleika á því að fá peningagreiðslur. Einungis þátttakendur sem klára rannsóknina eiga möguleika á því að fá greiðslur. Sama á við um persónulega endurgjöf á grundvelli upplýsinga úr rannsókninni.

Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Eftirtaldir rannsakendur koma einnig að verkefninu:

  • Matthias Wibral, dósent í hagfræði, Maastricht-háskóli, Hollandi
  • Arno Riedl, prófessor í hagfræði, Maastricht-háskóli, Hollandi
  • Matthias Sutter, prófessor í hagfræði, Max Planck-stofnunin fyrir atferlishagfræði, Þýskalandi
  • Michal Krawczyk, prófessor í hagfræði, Háskólinn í Varsjá, Póllandi
  • Hjördís Harðardóttir, verkefnastjóri, Háskóli Íslands
  • Helgi Guðmundsson, sérfræðingur, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands
  • Cass Sunstein, prófessor í lögfræði, Harvard háskóli, Bandaríkin
  • Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálasálfræði, Háskóli Íslands
  • Guðberg Konráð Jónsson, forstöðumaður, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands

Já. Rannsóknaráætlunin var lögð fyrir siðanefnd Háskólans í Maastricht, sem gerði 25. maí 2026 engar siðferðilegar athugasemdir við framkvæmd hennar. Rannsóknin er unnin í alþjóðlegu samstarfi og hluti rannsóknarhópsins starfar þar. Rannsóknin er ekki háð leyfi Vísindasiðanefndar samkvæmt lögum nr. 44/2014 um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, né leyfi Persónuverndar samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, enda byggir almenn vinnsla rannsóknargagna á upplýstu samþykki þátttakenda.

Rannsóknarteymið svarar spurningum um rannsóknina og þátttöku í henni. Netfang: rannsoknin.val@hi.is, sími 525 4545 (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands).

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Háskóli Íslands. Spurningum um persónuvernd má beina til persónuverndarfulltrúa háskólans, Magnúsar Jökuls Sigurjónssonar, mjs@hi.is, sími 525 4052.