Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar

Um rannsóknina

Markmið rannsóknarinnar er að auka þekkingu á mannlegri hegðun og ákvarðanatöku.

Rannsóknin er leidd af vísindafólki við Háskóla Íslands í samstarfi við alþjóðlegan hóp rannsakenda frá Háskólanum í Maastricht í Hollandi, Max Planck-stofnuninni í Þýskalandi, Háskólanum í Varsjá í Póllandi og Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.

Ábyrgðarmaður verkefnisins er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.

Rannsóknin hefur hlotið styrk frá Rannsóknasjóði, styrknúmer 2410236, auk stuðnings frá Reykjavíkurborg, Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins (Strætó) og Kötlu Fitness.

Þátttaka fer fram í stafrænu viðmóti og getur tekið allt að 45 mínútum. Þátttakan getur falið í sér eftirfarandi þætti. Sumir þátttakendur svara öllum þáttunum, aðrir aðeins hluta:

  • Spurningar um bakgrunn, viðhorf og venjur.
  • Lukkuhjól þar sem þátttakendum kann að standa til boða að kaupa tímabilskort á afsláttarverði: strætókort hjá Strætó, líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness, Menningarkort eða sundkort hjá Reykjavíkurborg. Þátttakandi tilgreinir fyrst hæsta verð sem hann er reiðubúinn að greiða fyrir kortið. Því næst dregur lukkuhjólið verð af handahófi, á bilinu frá núlli upp að markaðsverði kortsins. Öll verð á því bili eru jafnlíkleg. Sé dregna verðið jafnt eða lægra en hámarksverðið sem þátttakandinn gaf upp verða kaupin að veruleika á verðinu sem lukkuhjólið sýnir. Sé það hærra fara engin kaup fram.
  • Spurningar þar sem valið er milli mismunandi peningagreiðslna. Sumir þátttakendur fá greiðslu, allt að 15.000 krónum. Hvort greiðsla kemur til og hversu há hún er ræðst af vali þátttakandans í spurningunum og handahófsvali.
  • Hver þátttakandi hefur 24 klukkustundir til að ljúka rannsókninni. Tíminn byrjar að telja þegar þátttakandi hefur skráð sig inn með rafrænum skilríkjum. Innan þessara 24 klukkustunda geta þátttakendur lokað viðmóti rannsóknarinnar hvenær sem er og skráð sig inn aftur með rafrænum skilríkjum til að halda áfram. Að þeim tíma liðnum lokast aðgangur og frekari þátttaka er ekki möguleg.
  • Aðeins þátttakendur sem ljúka rannsókninni innan þessara 24 klukkustunda eiga möguleika á peningagreiðslu.
  • Að jafnaði er ekki hægt að fara til baka í viðmóti rannsóknarinnar. Því er mikilvægt að íhuga svörin vel áður en haldið er áfram, sérstaklega þar sem afslættir og greiðslur kunna að ráðast af vali milli mismunandi kosta í rannsókninni.

Hugsanlegt er að haft verði samband við þátttakendur síðar og þeim boðin þátttaka í eftirfylgnirannsóknum. Þótt við metum áframhaldandi þátttöku mikils er hún ávallt valfrjáls.

ATHUGIÐ: Rannsóknin felur í sér lukkuhjól og handahófsval. Fyrir einstaklinga með spilafíkn getur þetta líkst fjárhættuspili og virkað sem kveikja. Einstaklingar sem hafa glímt við eða glíma við spilafíkn ættu að hafa þetta í huga áður en þeir ákveða hvort þeir taki þátt. Spilavandateymi SÁÁ veitir aðstoð við spilavanda: spilavandi@saa.is eða sími 530 7600.

Ábyrgðarmaður og aðalrannsakandi er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Háskóli Íslands.

Spurningum um rannsóknina og þátttöku í henni má beina til rannsóknarteymisins: rannsoknin.val@hi.is eða sími 525 4545 (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands).

Spurningum um persónuvernd má beina til persónuverndarfulltrúa Háskóla Íslands, Magnúsar Jökuls Sigurjónssonar: mjs@hi.is eða sími 525 4052.