Rannsóknin VAL
VAL er rannsókn á ákvarðanatöku í daglegu lífi. Rannsóknin er framkvæmd af fræðimönnum við Háskóla Íslands í samstarfi við alþjóðlega rannsóknahópa og innlenda samstarfsaðila.
Get ég tekið þátt?
Allir íbúar höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 18–66 ára geta tekið þátt.
Af hverju ætti ég að taka þátt?
- Þú gætir fengið afslátt af tímabilakortum frá samstarfsaðilum okkar.
- Þú gætir fengið beinar peningagreiðslur.
- Að rannsókn lokinni gætir þú fengið persónulega endurgjöf um þætti í eigin hegðun.
- Þú leggur þitt af mörkum til vísindarannsókna sem auka þekkingu á mannlegri hegðun.
Hvernig tek ég þátt?
- Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
- Þátttaka getur tekið allt að 45 mínútum.
- Þú hefur 24 klukkustundir til að ljúka þátttöku.
- Þú getur lokað viðmótinu og haldið áfram síðar hvenær sem er innan þess tíma.
