Persónuvernd og öryggi
Rannsóknin fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þú getur lesið upplýst samþykki rannsóknarinnar í heild sinni áður en þú byrjar.
Gagnaöryggi
Meðferð persónuupplýsinga
Allar upplýsingar um þátttakendur og gögn úr rannsókninni eru geymd undir dulkóðuðum persónuauðkennum í rannsóknargagnagrunni. Við greiningu eru ávallt notuð gögn úr þeim gagnagrunni, sem inniheldur engar beint persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nöfn eða kennitölur. Dulkóðunarlykillinn er geymdur aðskilinn frá gögnunum og með öruggum hætti hjá Upplýsingatæknisviði Háskóla Íslands, og hann er aðeins notaður í þeim tilgangi sem lýst er hér að neðan. Rannsakendur hafa ekki aðgang að lyklinum. Engar persónugreinanlegar upplýsingar koma fram í þeim niðurstöðum sem birtar eru. Öll gögn eru meðhöndluð sem trúnaðarmál.
Tenging við notkunargögn
Upplýsingar úr rannsókninni verða tengdar við gagnagrunna um notkun þeirrar þjónustu sem þátttakendur kaupa. Þar sem notkunargögn eru vistuð á kennitölum krefst tengingin þess að auðkenni rannsóknargagnanna séu tímabundið afkóðuð á meðan á tengingu stendur. Fyllsta öryggis er gætt í því ferli.
Aðrar mögulegar gagnatengingar
Í framtíðinni gætum við leitast við að tengja svör þín við gögn úr öðrum skrám í rannsóknarskyni, til dæmis mennta-, skatta- eða heilbrigðisskrár, íslensk erfða- eða ættfræðigögn, eða kannanir. Slík tenging verður aðeins framkvæmd ef heimild er til vinnslunnar að lögum. Krefjist lög sérstakra leyfa eða aðgangsheimilda verður þeirra aflað áður en tengingin fer fram. Hvaða heimilda er þörf ræðst meðal annars af tilgangi rannsóknarinnar, tegund og uppruna gagnanna og því hvernig tengingin fer fram. Falli rannsókn undir lög nr. 44/2014 um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði þarf leyfi vísindasiðanefndar eða þar til bærrar siðanefndar heilbrigðisrannsókna. Í öðrum tilvikum getur tenging við skrá sem hefur að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar verið háð leyfi Persónuverndar. Aðgangur að gögnunum sjálfum er auk þess háður heimild þess sem ber ábyrgð á þeim. Slík tenging getur krafist þess að auðkennin séu afkóðuð tímabundið á meðan á henni stendur.
Almennt verður ekki haft samband við þig aftur til að afla samþykkis fyrir slíkum tengingum, en þú getur hvenær sem er afturkallað heimild þína fyrir framtíðartengingu með því að hafa samband við rannsóknarteymið.
Upplýsingar sem þarf til að stofna tímabilskort
Ef kaup fara fram verða þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að stofna kortið (svo sem kennitala, nafn, netfang, heimilisfang, símanúmer og kyn) afhentar viðeigandi þjónustuaðila: Strætó, Kötlu Fitness eða Reykjavíkurborg.
Upplýsingar veittar þátttakendum
Í lok eigin þátttöku geta þátttakendur valið að fá upplýsingar um eigin niðurstöður varðandi hegðun. Ef þátttakandi velur að fá slíkar upplýsingar þarf tímabundið að afkóða auðkenni hans til að hægt sé að senda niðurstöðurnar.
Aðgangur og alþjóðleg miðlun gagna
Til að efla vísindalegt gagnsæi og endurtekningarhæfni verða gögn úr rannsókninni, undir dulkóðuðum auðkennum, gerð aðgengileg hæfum rannsakendum um allan heim í gegnum gagnageymslu með stýrðum aðgangi. Rannsakendur sem tengjast viðurkenndum rannsóknastofnunum geta sótt um aðgang. Þetta þýðir að gögn þín kunna að verða flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES), þar á meðal til landa sem veita hugsanlega ekki sömu vernd persónuupplýsinga og Ísland eða Evrópusambandið. Slíkur flutningur verður framkvæmdur í samræmi við V. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679 (GDPR), með viðeigandi verndarráðstöfunum, svo sem stöðluðum samningsákvæðum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt, eða á grundvelli ákvörðunar um fullnægjandi vernd þar sem það á við, til dæmis Data Privacy Framework milli ESB og Bandaríkjanna. Engum beint persónugreinanlegum upplýsingum verður miðlað.
Greiðsluöryggi
Greiðslukortaupplýsingar
Við þátttöku í rannsókninni munu þátttakendur þurfa að gefa upp greiðslukortaupplýsingar í öruggu viðmóti vegna mögulegra kaupa á tímabilskorti á afsláttarverði. Greiðslukortaupplýsingar verða ekki varðveittar af rannsóknarteyminu, heldur er þeim eytt strax og greiðslu lýkur (ef kaup eiga sér stað) eða heimild hefur verið felld niður (ef ekki verður af kaupum) í gegnum örugga gátt greiðslumiðlara.
Greiðsluheimild
Áður en kaup fara fram tilgreina þátttakendur það hámarksverð sem þeir eru reiðubúnir að greiða. Kerfið sækir heimild fyrir þeirri upphæð á greiðslukortinu sem þátttakandi gaf upp. Þátttakendur geta aðeins haldið áfram ef heimild liggur fyrir, þar sem þeir skuldbinda sig til að greiða allt að þeirri upphæð. Ef kaup fara fram verður upphæðin sem skuldfærð er ávallt jöfn eða lægri en uppgefið hámarksverð.
Kennitala og bankareikningsnúmer
Ef þátttakandi fær greiðslu í rannsókninni mun hann þurfa að gefa upp bankareikningsnúmer. Ódulkóðuð kennitala og bankareikningsnúmer verða geymd á öruggan hátt þar til allar millifærslur til þátttakanda hafa verið framkvæmdar sem getur verið allt að fjórum mánuðum eftir þátttöku í rannsókninni. Um leið og allar greiðslur hafa verið framkvæmdar er bankareikningsnúmeri þátttakanda eytt.
Öryggi og trúnaður
Við leggjum mikla áherslu á öryggi og trúnað við meðferð allra upplýsinga. Upplýsingar um greiðslukort verða meðhöndlaðar með öruggum hætti af greiðslumiðlara okkar, Verifone (starfar fyrir hönd Landsbankans sem færsluhirðir). Landsbankinn uppfyllir alþjóðlega PCI-DSS öryggisstaðla til að tryggja persónuvernd og gagnaöryggi.
Ábyrgðaraðili og tengiliðir
Ábyrgðarmaður og aðalrannsakandi er Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands. Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Háskóli Íslands.
Spurningum um rannsóknina og þátttöku í henni má beina til rannsóknarteymisins á netfangið rannsoknin.val@hi.is eða til Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands í síma 525 4545. Félagsvísindastofnun sér um gagnaöflun.
Spurningum um persónuvernd má beina til persónuverndarfulltrúa Háskóla Íslands, Magnúsar Jökuls Sigurjónssonar: mjs@hi.is eða sími 525 4052.