Hvernig veljum við?
VAL | Vísindarannsókn Háskóla Íslands á ákvarðanatöku í daglegu lífi
ATH! Þú hefur 24 klst. frá fyrstu innskráningu til að ljúka þátttöku
Get ég tekið þátt?
Þú getur tekið þátt ef þú ert 18–66 ára, ert með rafræn skilríki og býrð eða dvelur að jafnaði á höfuðborgarsvæðinu. Það skiptir ekki máli hvar lögheimili þitt er skráð.
Af hverju ætti ég að taka þátt?
- Þú leggur þitt af mörkum til vísindarannsókna Háskóla Íslands sem auka þekkingu á mannlegri hegðun.
- Þú getur valið að fá persónulega endurgjöf um eigin hegðun. Hún berst eftir að allri rannsókninni lýkur.
- Þér kann að standa til boða tímabilskort á afslætti: strætókort hjá Strætó, líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness, Menningarkort eða sundkort hjá Reykjavíkurborg. Kortið er keypt í viðmóti rannsóknarinnar með greiðslukorti.
- Sumir þátttakendur fá beinar peningagreiðslur, sem leggjast inn á íslenskan bankareikning.
Hvernig tek ég þátt?
- Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
- Þátttaka getur tekið 15 til 45 mínútur.
- Þú getur lokað viðmótinu og haldið áfram síðar.
- Þú hefur 24 klukkustundir til að ljúka þátttöku.
ATH! Þú hefur 24 klst. frá fyrstu innskráningu til að ljúka þátttöku